Home Podcasts Kratinn
Kratinn

Kratinn

Samfylkingin 38 episodes Nov 20, 2026

Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.

Episodes

S310: Liðhlaupi, sleggjan virkar og skoðanir ungra manna á hinu og þessu
S310: Liðhlaupi, sleggjan virkar og skoðanir ungra manna á hinu og þessu Nov 20, 2026 01:12:28 Í hlaðvarpi vikunnar var hið svokallaða „manosphere” eða karlahvolf heimsótt. Arnar Þór og Þórhallur Valur fengu til sín Arnar Inga Ingason tónlistarmann og Jónas Má Torfason oddvita flokksins í Kópavogi til þess að fara yfir málefni líðandi stundar út frá sjónarhóli karlmanna í yngri kantinum. Þeir greindu vistaskipti ungs karlmanns að norðan milli þingflokka, ræddu drauma sína um breytingar á st
S309: Gervihagræðingarhópur, farsahöfundurinn Sigurður Ingi og menntamál
S309: Gervihagræðingarhópur, farsahöfundurinn Sigurður Ingi og menntamál Nov 13, 2026 01:03:24 Hlaðvarpsþáttur vikunnar er kominn út á öllum helstu veitum. Í þættinum voru helstu mál vikunnar tekin fyrir. Nýjasti kaflinn í farsahandriti Sigurðar Inga og stjórnarandstöðunnar varðandi stjórn Landsvirkjunar voru í deiglunni eftir að í ljós kom að fjármálaráðherrann fyrrverandi ber ábyrgð á fyrirkomulaginu sem hann hefur kvartað sig hásan yfir og neitaði svo að taka ábyrgð á því í viðtali. Þátt
S308: Ýkt hægrisveifla, fæðingarorlofsmál og nýi Pírataflokkurinn
S308: Ýkt hægrisveifla, fæðingarorlofsmál og nýi Pírataflokkurinn Nov 6, 2026 01:15:45 Í hlaðvarpsþætti vikunnar voru stóru málin tekin fyrir,góðri venju samkvæmt. Í fyrri hluta þáttarins ræddu Þórður Snær, Ásta Guðrún, Arnar Þór og Þórhallur Valur um hvort tölvur ættu heima í pontu Alþingis. Ótrúverðug atlaga stjórnarandstöðunnar gegn Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra vegna uppsagnar forstjóra Landsvirkjunar var krufin og framganga nýja Pírataflokksins, sem áður var kenndur v
S307: Öxin hennar Hildar, Alþýðusambandið og meintur miðjuflokkur
S307: Öxin hennar Hildar, Alþýðusambandið og meintur miðjuflokkur Nov 2, 2026 54:46 Vegna tæknilegra örðugleika er hlaðvarpið seint á ferðinni þessa vikuna. Í fyrri hluta þáttar mættu til Þórðar Snæs og Þórhalls Vals þær Bjarnveig Birta Bjarnadóttir og Regína Ásvaldsdóttir úr borgarstjórnarhópi flokksins. Þær höfðu ýmislegt að segja um uppsagnir Reykjavíkurborgar, enda með fjölbreyttan bakgrunn úr rekstri. Framsóknarflokkurinn var afhjúpaður sem stækur hægri íhaldsflokkur og reks
S306: Er ofurkonan að örmagnast?
S306: Er ofurkonan að örmagnast? Oct 23, 2026 01:01:16 Í þætti vikunnar mættu Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður í viðtal. Þær gerðu upp vel heppnaðan fund Kvennahreyfingarinnar í vikunni sem bar yfirskriftina „Ofurkonan vs. tradwife“. Í viðtalinu ræddu þær við Sonju og Þórhall Val um jafnréttisbaráttuna, uppgang úreltra kynjahugmynda, ýmsar ranghugmyndir
S305: Jafnaðarstefnan kjörnuð og drottningarviðtal við Guðmund Ara
S305: Jafnaðarstefnan kjörnuð og drottningarviðtal við Guðmund Ara Oct 16, 2026 55:11 Í hlaðvarpi vikunnar mætti nýr varaformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, í sannkallað drottningarviðtal til Arnars Þórs og Þórhalls Vals. Drengirnir gengu hart að honum og kröfðu hann um að útskýra sína pólitísku sýn, hvað hann langaði að afreka sem varaformaður og hvernig hann fór frá því að vera utangátta unglingur yfir í að öðlast tilgang og finna til ábyrgðar gagnvart samféla
S304: Kolbrún Bergþórsdóttir í viðtali við meintan fjölmiðil
S304: Kolbrún Bergþórsdóttir í viðtali við meintan fjölmiðil Oct 9, 2026 40:45 Í inngangi þáttar ræddu Þórhallur Valur, Arnar Þór og Ásta Guðrún um skráningarskyldu fjölmiðla en Kratinn hefur óskað eftir áliti fjölmiðlanefndar um skráningarskyldu sína til að friða sinn virkasta hlustendahóp, þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Síðar mætti Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður til áratuga, með hnífabrýnið á lofti í viðtal til strákanna. Kolbrún lýsti því yfir að hún upplifði ekki mei
S303: Making Reykjavík boring again og kálfarnir á Ulf Kristersson
S303: Making Reykjavík boring again og kálfarnir á Ulf Kristersson Oct 2, 2026 53:09 Þessa vikuna fengu Arnar og Valur góða gesti í hús, tvo ung-krata, þá Arnar Inga Ingason, tónlistarmann og Jóhannes Óla Sveinsson, forseta Ungs jafnaðarfólks. Til umræðu voru tímamótaræða Andy Burnham, yfirlýsing formanns Sjálfstæðisflokks um að það styttist mögulega í kosningar, staðan í stjórnarmyndun hjá sænsku Sossunum og því tengt, kálfarnir á Ulf Kristersson, úttekt Vinnueftirlitsins á stólu
S302: Lygar, afbakanir og möguleg endalok Pírata?
S302: Lygar, afbakanir og möguleg endalok Pírata? Sep 25, 2026 49:18 Tíu milljarðar fóru til bílaleiganna, en lítill árangur hefur náðst hjá þeim í að fækka bílum sem ganga fyrir jarðefniseldsneyti. Ásta veltir fyrir sér hvort endalok Pírata séu í sjónmáli, en í nýjustu könnun Maskínu mælist flokkurinn með 3,5% fylgi. Bókun 35, Miðflokkurinn og fjármál sveitarfélaga koma líka við sögu, ásamt ýmsu fleiru.
S301: Hanskarnir af
S301: Hanskarnir af Sep 19, 2026 37:16 Kratinn mætir úr lærdómsríku sumarfríi með hanskana af. Þjóðaratkvæðagreiðslan var gerð upp og því velt upp af hverju stjórnarandstaðan hættir ekki að tala um hana eins og hún lofaði. Skattastefna Sjálfstæðisflokksins var tekin fyrir og af hverju í ósköpunum Vinstri græn samþykktu 330 milljarða skattalækkanir á meðan þau skiluðu 866 milljarða halla á ríkissjóði. Fyrsta umræða fjárlaga var dregin s
S236: Eldhúsdagsumræður, viðkvæmir hægrimenn og hækkað í ofnunum á Alþingi
S236: Eldhúsdagsumræður, viðkvæmir hægrimenn og hækkað í ofnunum á Alþingi Jun 12, 2026 35:31 Þáttur vikunnar er seinna á ferðinni en vanalega vegna eldhúsdagsumræðunnar á Alþingi sl. miðvikudag. Ræðumenn Samfylkingarinnar, sem voru Jóhann Páll Jóhannsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, fóru þar yfir farinn veg á þessu þingári og ýmis afrek sem unnist hafa á vettvangi þingsins. Þáttastjórnendur fóru yfir bestu og verstu frammistöðurnar. Þá sagði Ásta Guðrún sögu af krullhærðum Pírata í gja
S235: Sigurjón, Áslaug Arna og borgin
S235: Sigurjón, Áslaug Arna og borgin Jun 4, 2026 41:55 Þátturinn hófst á óvæntri gestakomu, Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, kíkti í stutt innlit og fór yfir innviðafélag sem er á dagskrá Alþingis í dag.Rætt var um samgönguáætlun, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur af Alþingi og fyrstu verk nýrrar borgarstjórnar ásamt fleiru.

Recommended