Home Podcasts Gæðastjórnin
Gæðastjórnin

Gæðastjórnin

Gæðastjórnin 8 episodes Nov 9, 2026

Vinkonur þínar að tala um gæðin í lífinu.

Episodes

Gestgjafinn
Gestgjafinn Nov 9, 2026 54:53 Er veisla í vændum? Elskaru að halda veislu eða vera boðin í veislu? Þessi þáttur er fyrir alla gestgjafa og veislugesti. Hvað er þema í barnaafmæli og hvernig gestgjafi ert þú, pródúsentinn eða panikkarinn. Hlustið og veislan verður að þinni.
Októjól
Októjól Oct 26, 2026 50:09 Má þetta í október?? Hlusta á jólalag? Skreyta? Borða piparkökur?? Já stórt er spurt! Við stálumst til að kíkja aðeins í pakkann, jólapakkann. Rýnum í refinn hjá sannri þjóðargersemi, hversu iconic?! Allt hitt í þættinum er smá aukaatriði, biðjum að heilsa öllum og ef þið viljið stelast til að hlusta á eitt jólalag í október látið það þá vera lokalagið hennar Snæju okkar bestu. Healthy nasty true
Spúkístjórnin
Spúkístjórnin Oct 15, 2026 54:04 BÚ! Nýr þáttur mættur, fáránlega spooky í tilefni hrekkjavökunnar sem er á næsta leyti. Fastir liðir á sínum stað, bestu staðirnir fyrir speglaselfie teknir fyrir, búningahugmyndir, spooky aðstæður í hversdeginum OG, kæru hlustendur, engin önnur en Snæfríður Sól aka Snæja sound musicgenius director drolla er mætt aftur til leiks og hún endar þáttinn á mögulega besta spooky sexy halloween lagi allr
Kósíbankinn
Kósíbankinn Sep 21, 2026 01:03:34 Í þriðja þætti haustsins ræðum við kósýheitin í hversdeginum, hvort sem það er að opna eina crémant eða taka stutta skák, já eða bæði. Við svörum svo stóru spurningunni er þetta grænmeti eða? og einhver (sunna) fær lítið heilablóðfall. Við Rýnum í Refinn hjá Völu Kristínu stórleikkonu og grínista og kynnum inn TVO nýja fasta liði! Rvkfoodie hornið, þar sem Sunna fer yfir nýjustu fregnir í veitinga
Súpur og Skipulag
Súpur og Skipulag Sep 7, 2026 43:15 Já annar þátturinn í röð þar sem súpan er rædd í þaula, þykkar súpur, tærar súpur, beikonsúpur.. svo reynum við að kenna hvorri annarri eitt og annað um skipulag og kíkjum í heimsþekktan bragðaref!
Haust Naglasúpa
Haust Naglasúpa Aug 24, 2026 59:23 Það er útlit fyrir pumpkin spice latte season og við í stjórninni hentum í einn kósí naglasúpuþátt í tilefni þess. Sannkallaður haustbragur er yfir þættinum, hvað er svona gott við haustið? Kunna allir að klæða sig eftir veðri?? EN það var ekki bara rætt um haust heldur hefur hulunni verið svipt af HOT FLOKKUN KARLA eftir ítrekaðar beiðnir frá sponsornum okkar Stefáni í ekkert að frétta pod og það
Íslenskt Sumar pt.2
Íslenskt Sumar pt.2 Aug 9, 2026 01:00:29 Hvað er það besta við íslenska sumarið?Hvernig er hægt að vera sniðugur með nesti og mat í ævintýrum sumarsins? Er hægt að vera hot i útilegu?? Nýtt þemalag ADLsins?Er krúttlegra að vera loðinn einhversstaðar?Verður eitthvað partý sumarsins?Þurfum við kannski bara logn og einn bol til að sumarið sé gott?Hefuru strunsað út úr ísbúð?😤
Íslenskt Sumar pt.1
Íslenskt Sumar pt.1 Jul 22, 2026 01:10:26 Er Vigdís svo tveggja flokka kona eftir allt saman?Myndiru drekka baðvatnsbrúnan Collab? Hvernig gerir maður ávaxtasýróp án hita? Hvernig eldar maður með hráefnum úr íslenskri náttúru? Er sumarkokteillinn Viðey spritz? Dagsferðir á Íslandi, sólarlanda ADL, gubbusögur og besta gosið í hita.
Morgunstund
Morgunstund Jun 10, 2026 55:19 Góðan dag elskurnar! Þema þáttarins er hin heilaga morgunstund, hvað gerir morgunstund góða? Við reynum að svara stóru spurningum lífsins; hvað þýðir stillingin á ristavélinni eiginlega, er hægt að eiga hugmyndir utan samfélagsmiðla, hvað er best að borða í morgunmat og hvað er super marmeladda? Andri Fannar Ottósson dregur okkur svo upp úr drullusvaðinu með ljóði sínu og við fáum hugljúfa innsend
Sósa og (reyndar ekkert) salat
Sósa og (reyndar ekkert) salat Jun 1, 2026 53:28 Allt fyrir sósuna! Það er sumar í lofti og því lá beinast við að hafa þema þáttarins sumarlegt og hvað er sumarlegra en sósa og salat? Nema við gleymdum að tala um salat. Hins vegar ræðum við Subway sósur, bestu og verstu sósuna, hvernig Gagga smók gerir góða brúna sósu og auðvitað getum við ekki haldið kjafti með hotflokkunina okkar - hvaða sósa ert þú? Glænýr sponsor og vinkonudrama?
Brúðkaupsþátturinn Já
Brúðkaupsþátturinn Já May 7, 2026 01:06:34 Í þættinum verður farið yfir brúðkaups tips & tricks & do’s & don’ts & kiss me nots & tie the knots. Ekki skilja okkur eftir á altarinu < 3
Allt er vænt sem vel er dænt
Allt er vænt sem vel er dænt Apr 27, 2026 57:40 Þátturinn fjallar um allt sem tengist því að fara út að borða. Í gæðastjórninni fyrirfinnast nefninlega tveir sérfræðingar í veitingastaðamálum og ein kona sem finnur fyrir vanmætti sínum (og staðsetur sig á óvæntu bæjarstæði á Suðurlandi). Í þættinum verður eftirfarandi spurningum svarað; hvar færðu besta forréttinn? Kokteilinn? Aðalréttinn? Eftirréttinn? Post djamm bitann? Er kál mjög æðislegt?

Recommended