
Í FREMSTU RÖÐ
Í Fremstu Röð er íslenskt hlaðvarp sem fjallar um hvað einkennir fyrirtæki, stjórnendur og starfsfólk sem skarar fram úr. Það miðlar fræðilegri þekkingu á hagnýtan hátt, ásamt reynslusögum úr íslensku atvinnulífi. Markmiðið er að brúa bilið milli fræða og atvinnulífs, rannsókna og reynslu, og þekkingar og framkvæmda. Hver þáttur veitir skýra innsýn í eitt viðfangsefni byggt á ritrýndum rannsóknum og raunverulegum dæmum.
Episodes
Lokaðu hringnum er leyndarmálið á bakvið framúrskarandi viðskiptavinaupplifun (CX)
Hvers vegna eru sum fyrirtæki mun betri en önnur í að halda í viðskiptavini sína?Í þessum þætti ræði ég við Kára Þór Rúnarsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Brilliant, um upplifun viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði (B2B) og hvers vegna hún er orðin einn mikilvægasti samkeppnisþáttur fyrirtækja sem vilja vera í fremstu röð.Við ræðum meðal annars:Hvers vegna fyrirtækjamarkaður og neytendamarkaður kr
2 milljónir meðlima: Saga Club stærsti vildarklúbbur Íslands
Í þessum þætti köfum við ofan í einn stærstu vildarklúbb Íslands - Icelandair Saga Club.Með mér er Magnús Þorlákur Lúðvíksson, forstöðumaður Saga Club, sem gefur okkur innsýn í hvernig vildarkerfi Icelandair hefur þróast frá hefðbundnum flugpunktum yfir í öflugt vistkerfi með yfir 2 milljónir skráðra meðlima og 400.00 þúsund virka notendur. Við ræðum meðal annars:Hvernig tryggðarvegferð Icelandair
Úr 600 milljónum í 100 milljarða: stefnan á bak við netverslunarrisann Boozt
Í þessum þætti köfum við ofan í vegferð BOOZT, fyrirtækis sem hefur á tiltölulega skömmum tíma byggt upp eitt öflugasta netverslunarkerfi Norðurlanda.Við ætlum ekki bara að segja söguna heldur rýna í hvað liggur raunverulega að baki árangrinum og hvað önnur fyrirtæki geta lært af þessari vegferð. Við ræðum sérstaklega stefnu, omnichannel nálgun, mælikvarða, hlutverk stjórnar ásamt framtíðarhorfum
Vegferð ELKO: Frá verðsamkeppni í traustan ráðgjafa
Í þessum þætti fáum við innsýn í vegferð ELKO í átt að metnaðarfullu markmiði:að eiga ánægðustu viðskiptavinina á raftækjamarkaði - sem náðist á þessu ári með afgerandi hætti.Ég ræði við Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóra ELKO, um hvað liggur raunverulega að baki þessum árangri. Við köfum í hvernig ELKO hefur umbreytt stefnu sinni – frá því að keppa fyrst og fremst á verði og úrvali yfir í
NOVA Fyrir þig
Í þessum fyrsta þætti af Í Fremstu Röð fjöllum við um NOVA, fyrirtæki sem hefur hlotið íslensku ánægjuvogina 17 ár í röð. En frá því að þátturinn var tekinn upp bættist enn eitt árið við! Í þættinum ræði ég við þær Renötu Blöndal, fararstjóra upplifunar og Elfu Arnardóttur, þjálfara viðskiptaþróunar. Við köfum sérstaklega í tryggðarvegferð NOVA og hvernig fyrirtækið byggir upp langtíma samband við











