Home Podcasts Þetta helst
Þetta helst

Þetta helst

RÚV 694 Episodes Jun 30, 2026

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Episodes

Staðan á leigumarkaði í ljósi breytinga í New York
Staðan á leigumarkaði í ljósi breytinga í New York Jun 30, 2026 0:15:48 Í Þetta helst í dag er sjónum beint að stöðunni á leigumarkaði hér á landi. Ákveðið var að frysta leiguverð í New York í lok síðustu viku. Væri æskilegt að fara svipaða leið hér? Rætt er við Kristínu Amalíu Líndal, hagfræðing hjá HMS, og Yngva Ómar Sigrúnarson, formann Samtaka leigjenda. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Stoðir styrkjast: Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður
Stoðir styrkjast: Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður Jun 29, 2026 0:15:02 Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef samruninn gengur eftir verður til risastórt fyrirtæki á ferðaþjónustumarkaði. Samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækjanna tveggja er rúmlega 1100. Eitt af því sem vekur athygli við þessa fyrirhugðuðu sameiningu Bláa lónsins og Arctic Adventures er að fjárfest
Takmörkuð áhrif lækkunar kakóverðs
Takmörkuð áhrif lækkunar kakóverðs Jun 26, 2026 0:13:29 Í nýrri úttekt verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands, sem birt var í gær, kom fram að verð á vinsælum súkkulaði- og sælgætisvörum hefur hækkað um tæp 33 prósent að meðaltali frá júní 2024 til júní 2026 - og að miklar verðlækkanir á kakó og sykri undanfarið hafa ekki skilað sér í smásöluverð. Rætt er við Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóra Vísbendingar, og Bjarka Stein Benja
Ójöfnuður til heilsu fer vaxandi
Ójöfnuður til heilsu fer vaxandi Jun 25, 2026 0:15:27 Í gær birti embætti landlæknis nýja úttekt þar sem rýnt er í þróun á andlegri heilsu landsmanna undanfarinn áratug. Það vekur athygli að mikinn mun má sjá á öllum mælingum eftir fjárhagsstöðu, á þeim sem eiga erfitt með að ná endum saman og þeim sem eiga auðvelt með það, og munar yfirleitt tugum prósenta. Embættið telur niðurstöðurnar benda til þess að ójöfnuður til heilsu og vellíðanar fari vaxan
Fólk sem var á Gauksstöðum gagnrýnir tímaramma rannsóknar
Fólk sem var á Gauksstöðum gagnrýnir tímaramma rannsóknar Jun 24, 2026 0:16:59 Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði er ósátt við að tímarammi rannsóknar íslenska ríkisins á fósturheimilum nái ekki lengra fram í tímann en til ársins 2002. Tímamörk rannsóknarinnar miðast við gildistöku nýrra barnaverndarlaga þetta ár. Lög um rannsóknarnefndina voru samþykkt á Alþingi nú í júní. Fósturheimilið Gauksstaðir var starfandi í bænum Garði á Suðurnesjum á árunum 2009
Þingveturinn að baki
Þingveturinn að baki Jun 23, 2026 0:12:46 Á föstudaginn lauk Alþingi störfum þennan þingvetur og þingmenn héldu í sumarfrí. 188 frumvörp voru lögð fram og af þeim urðu 105 að lögum, 83 voru óútrædd og eitt ekki samþykkt. Rýnt er í stöðu mála með Viktori Orra Valgarðssyni, doktor í stjórnmálafræði. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Barátta frumbyggjanna við forseta Argentínu
Barátta frumbyggjanna við forseta Argentínu Jun 22, 2026 0:16:05 Kona sem tilheyrir samfélagi frumbyggja í suðurhluta Argentínu og berst gegn landnámi argentínska ríkisins í landinu var stödd hér á Íslandi í síðustu viku sem gestur á ráðstefnu sem fór fram í Háskóla Íslands. Konan heitir Moira Millán og tilheyrir ættbálki sem heitir Mapuche. Moira hefur setið í fangelsi vegna þessarar baráttu sinnar og segist vera í lífshættu og hafa fengið líflátshótun. Hú
Hugmyndin um takmörk á íbúafjölda
Hugmyndin um takmörk á íbúafjölda Jun 18, 2026 0:14:21 Svisslendingar höfnuðu því í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudaginn að setja takmörk á íbúafjölda landsins, þannig að ekki mættu fleiri búa þar en tíu milljónir. Rætt er við Ólaf Margeirsson, hagfræðing í Sviss, um atkvæðagreiðsluna og hugmyndina.
Ábendingar um ofbeldi í árabil en ekkert gerðist
Ábendingar um ofbeldi í árabil en ekkert gerðist Jun 16, 2026 0:14:59 Barnaverndaryfirvöld fengu margar ábendingar um árabil fyrir 2019 að börn sem dvöldu á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði hefðu verið beitt harðræði og ótilhlýðilegum refsingum. Starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur fóru meira að segja þangað árið 2015 og sóttu dreng sem talið að hefði verið refsað með óásættanlegum hætti. Starfsmaður hjá barnaverndarnefnd Hafnarfjarðar taldi meðal annars að hún
Gjá milli grasrótar og kjósenda?
Gjá milli grasrótar og kjósenda? Jun 15, 2026 0:15:42 Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og reglulega birtast niðurstöður skoðanakannana sem gefa mögulega mynd af því sem koma skal. Það sem vakti einna helst athygli í niðurstöðum könnunar Maskínu fyrir DV um helgina var afstaða stuðningsfólks vinstriflokkanna sem vilja að Ísland standi utan Evrópusambandsins, VG og Sósíalista, en 83,3 prósent kjósenda
Hyllir undir lok stærstu mansalsrannsóknar sögunnar
Hyllir undir lok stærstu mansalsrannsóknar sögunnar Jun 12, 2026 0:14:59 Stærsta mansalsrannsókn sem komið hefur upp á Íslandi hefur nú staðið yfir í meira en tvö ár. Þetta er rannsóknin á meintum brotum víetnamska viðskiptamannsins Quang Lé sem rak veitingastaðinn Wok On í Reykjavík og fleiri. Hver er staðan á rannsókninni núna og um hvað snýst þetta sérstæða mál Rætt er við lögreglumanninn Gunnar Axel Davíðsson sem stýrir rannsókninni á málinu hjá lögreglunni á h
Curaçao og fámennar þjóðir á stórmótum
Curaçao og fámennar þjóðir á stórmótum Jun 11, 2026 0:15:40 Í dag hefst heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem að þessu sinni er haldið í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada. Í þætti dagsins er rýnt í eyríkið Curaçao og hvað skýri velgengni fámennari þjóða á stórmótum. Rætt er við Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor í málefnum Suður-Ameríku, Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði sem hefur sérhæft sig í íþróttum, og Jóhann Má Helgason, sparkspeking. Umsjón:

Recommended