
Fílalag
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi.
Episodes
These Days – Smurstöð sexunnar
Nico – These Days Bleiki pardusinn settur í hrærivél og stappaður niður í bleikt vax sem bráðnar í lavalampa sem varpar bjarma á kríthvít kinnbein sem tróna á stalli rúllukragabolskraga sem er svartari en gljáandi gítarnöglin í hendi unglingsins sem svífur í gegnum móðuna með sama andvara og fleytti Ódysseifi að hjara veraldar og til […]
Ljósvíkingurinn – Hann er útilegumaðurinn
Mugison – Ljósvíkingur KFC-sokkin augu horfa á þig úr Mount Rushmore Almannagjáar. Þú gengur ekki einn. Fjallageit jarmar yfir heiðarlönd. Þú hlýðir ekki einn. Skynfæri spennt, kroppurinn kaldur. Upp úr dalnum líður reykur. Þú gengur ekki einn. Ljósið. Eldsneytið. Krafturinn.
DARE – Stafrænt camouflage
Gorillaz ft. Shaun Ryder – DARE Alþjóðavæðing. Nótt. Flókið. Casio hljómborð. Þreyttur um kvöld. Teikna. Heimurinn er án hjarta en það má spartsla upp í holur hér og þar. Það má glærlakka yfir óskapnaðinn og gefa stílleysinu hjúp kúls. Það eru bara til þrír til fjórir persónuleikar. Við höldum að við séum allskonar en þegar […]
Betri tíð – Listin að lifa í stuði
Stuðmenn – Betri tíð Kýrnar leika við kvurn sinn fíngur. Ananas-hlunkum sturtað niður úr flugvél sem stýrt er af flugkappa í terlin-buxum. Laugardalslaug fyllt lakkrís-konfekti. Í stúkunni hvítir komma-kroppar. Í kvöld förum við á fílum til Skatmandú. Nepjan. Norpið. Puðið. Stuðið. Hor í nös, allar bragðtegundir regnbogans. Fuglinn sýngur. Sumarið er komið. Svona á það […]
Movin’ on Up – Öskur úr iðrum jarðar
Primal Scream – Movin’ on Up Það er gott í vændum á nýju ári. Seiðkarlinn hrærir í potti og dregur upp lukkulegan spádóm handa þér væni minn. Þú munt stækka á nýju ári, vaxa um eitt númer, komast á næsta borð tölvuleiksins. Heill sé þér himnafaðir og allir jarðálfar púkalands því þessi stÆKKUN er mannkyni […]
Ef ég nenni – Ávöxtur í augnhæð
Helgi Björns – Ef ég nenni Slyddugremjan, rokið í hausnum, myrkrið í sálinni. Bless á þetta allt. Sýrustigið í maganum, slátturinn í brjóstinu, munnangrið. Verið þið sæl. Stundum þarf bara að taka stærstu gangstéttarhelluna og keyra hana í gegnum kjallaragluggann til að opna fyrir flæðið, andrýmið og orkuna. Helg eru jól, heilög sé sól, sú […]
Come On, Let’s Go – Kommon. Letsgó.
Ritchie Valens – Come On, Let’s Go Hér fer fram hugmyndafræðileg fílun á andkvíðalyfinu sem gengið hefur undir nafninu rokk og ról. Farið er í frumfílun á fyrsta útgefna lagi Ritchie Valens sem hann samdi og tók upp þegar hann var sextán ára gamall og hefur hinn mergjaða titil: “Come On, Let’s Go”. “Öllu er […]
Brown Eyed Girl – Frum-fenið
Van Morrison – Brown Eyed Girl George W. Bush í baði. Þröstur á grein. Fáviti að spóla úti á Granda. Dalalæða og derringur. Og þú brúneyga stúlkan mín. Hlaupa og hlæja og detta. Leiddu mig í lundinn. Morgunroði, dögg. Dick Cheney klippir táneglur. Mín liljan fríð.
Brimful of Asha – Barmur plús harmur deilt með takmarkaleysi
Cornershop og Norman Cook – Brimful of Asha Rómúlus og Remus totta spena. Fjörutíu og fimm snúningar á mínútu. Níl flæðir yfir bakka sína. Villigöltur hleypur í skjól. Hlöður fyllast. Sósan flæðir. Tuttugu og níu ára grafískur hönnuður hálsbrýtur sig í stiga. Rjóminn flæðir. Varir brosa, mjaðmir dilla, froðu fleytt af glasabarmi. Spilakassar syngja. Smálán […]
Sweet Jane – Kontrapunktur kúlsins
Velvet Underground – Sweet Jane Starfsmaður vegabréfaeftirlits á JFK-flugvelli horfir rannsakandi en kæruleysislegum augum þráðbeint framhjá þér. Í belti hans 9mm Glock, í vasa hans valdið, pakki með sex þurrum Orbit-þiljum. Það má skera loftið með kauðalegum smjörhníf sem átta ára barn kom með heim úr smíðatíma. Það má skera loftið niður í þykkar lifrapylsusneiðar.  […]
Moonlight Shadow – Miðilsfundur á Myrká
Mike Oldfield og Maggie Reilly – Moonlight Shadow Viðjulauf. Hvítir náttkjólar. Gólandi hundur. Skothvellur í fjarska og silkimjúkt myrkrið. Tonn hughrifa í eldspýtustokki. Heil veröld sem örbylgjumáltíð. Hvísl, þyngsli, sorg, gall. Þú gengur inn í blómabúð í leit að samúðarkorti og það er farið með þig á bakvið og fyrr en varði ertu í seftjörn […]
Fylgd – Áminning til labbakúta
Heimavarnarliðið – Fylgd Volkswagen bjöllur. Súld. Hagatorg. Gamla góða Keflavíkurgöngugreddan. Fegurð. Sveit í borg. Hólkvíðar skálmar undir heiðum himni. Bollasúpa. Breznev. Þjóðviljinn. Hermannajakkar. Ljóðabækur. Mussur þvegnar í læk þar sem nú er Smáralind. Lektorar. Billiard. Bartar og brjóstahaldarabrennur. Mundu, að þetta er landið þitt.
Serbinn – Segulsvið svitans
Bubbi – Serbinn Fjörutíu metrar á sekúndu. Ekki vindhviða heldur beinstíf leiðsla af flæðandi draugum inn í himinhvel hugans. Lax í dauðakippum. Eggjarauð kokteilsósa. Ok uxans. Minkafeldur suður slavneska herrans. Hringar Salómons. Framundan er bara vegurinn. Ekki Nebraska-vegurinn hans Steina heldur eitthvað miklu naprara og tærara. Slétta melrakka og vofunnar í hvilftinni. “Glitrar
Hotel California – Ernir. Síðari hluti. Vængir bráðna.
Eagles – Hotel California Lagið sem er fílað í dag ætti með réttu að vera síðasta lag sem Fílalag tekur fyrir (engar áhyggjur, það er það ekki, við erum rétt að byrja nýja seríu). Ástæða þess að það ætti að vera síðasta lagið sem við fílum er vegna þess að það er ósköp erfitt að […]
Lyin’ eyes – Ernir. Fyrri hluti. Að þolmörkum
Eagles – Lyin’ Eyes Kjarnasamruni. Reykjanesbrautin. Daðrið í myrkrinu. Augun, köldu krumlurnar, kæfisvefnsgræjurnar. Skiptilyklar, kokteilar, seðlaveski, bros. Gardínur í vindinum. Marge Simpson með varalit. Perlurnar, tárin, orðin. Söngur hjartans. Magasár, móðurmjólk, úraníumstútur. Langdrægir kjarnaoddar, kók, dagblað, sófasett, hott hott á hesti. Út að þolmörkunum. Einu sinni enn.
Geislinn í vatninu – Seiglan og lopinn
Hjálmar – Geislinn í vatninu Á borðið er lagður pottréttur, pottþéttur og piparlagður. Flúðasveppirnir löngu orðnir hluti af sósunni. Hvaðan kom þessi brögðótta en samt basic himnasending? Stundum er stöðum líst þannig að Guð hafi yfirgefið þá. “God forsaken” nefnist þetta á ensku. Sama hvað má segja um Ísland væri líklega aldrei rétt að segja […]
Wonderful Tonight – Dýrinu klappað
Eric Clapton – Wonderful Tonight Hápunktur. Lágpunktur. Stærðfræðilegur ómöguleiki. Mjótt mitti, lint typpi, í hjartanu nagandi ótti. Armani, Rolex, enginn náungakærleikur. Laxá í Ásum, kókómjólk og happaþrenna, kláði. Ferrari, Stratocaster, Château Mouton Rothschild. Connor. Covid. Cocaine. Drukknun, sukk, ólukka. Peningar, klikkun, kynlíf, krossgötur. Mæða, æði, græðgi, blæðing. Depurð, fe
Superman – Kaðlastigi úr kúlheimum
Trabant – Superman Tuttugu hestar hníga niður í miðri Ártúnsbrekku og leysast upp í grárri malbiks-súldinni í krampakenndum íslenska-dansflokks-hnykkjum. Gallajakka er rennt gegnum pre-reykingabanns íslenskt djamm-sumar og grafinn undir krossi að hausti. Neó-rómantísk tár falla og springa á köldum marmara eins og kristalskúlur í sjónvarpsmynd eftir Egil Eðvarðsson. Gult suð í höfði, veggur s
Don’t Know Much – Sölufuglinn
Linda Ronstadt og Aaron Neville – Don’t Know Much Linda Ronstadt er svalan sem syngur fyrir Bandaríkin. Að vísu hefur hún misst röddina nú því hún þjáist af taugasjúkdómi sem veldur skjálfta í líkamanum – en hott hott á hesti hvað hún hefur skilað inn drjúgu ævistarfi. Hún hefur líka sungið allt mögulegt: rokk, kántrí, […]
Það er puð að vera strákur – Puðið og tuðið
Bjartmar Guðlaugsson – Það er puð að vera strákur Núna geta allir loksins sofnað rótt. Hvort sem þið eruð langt leidd af klámfíkn, fransk-rennilása-læst í gamer-stól eða að klára mastersgráðu í þróuðu hugvísindanámi þá verða hér leidd fyrir ykkur sönnunargögn af safaríkara taginu. Um er að ræða titilag af plötu með Bjartmari frá 1989, en […]
More Than Words – Hegningarlagabrot
Extreme – More Than Words Everly Brothers sönnuðu það á sínum tíma að það er hægt að bora ansi mikið inn í kvikuna með einföldu gítarspili og tveimur röddum – og ef það er gert rétt, þá virkar sama formúlan ár eftir ár. Metal-hljómsveitin Extreme gaf út sitt frægasta lag á kraftbölluðuárinu mikla 1991 en […]
Masters of War – Mölétin mennskan
Bob Dylan – Masters of War Hamstur í örbylgjuofni. Óður maður á eplakassa. Skraufþurr heysáta. Vítisvélar á himni. Reikningur greiddur. Thank you ma’am. Rop og skyggðar rúður. Regn fellur á svörð. Þungamálmar fluttir á teinum. Rafmynta-reikningur opnaður á Ermasundseyju. Kúlur steyptar í mót. Krumla hvítnar á stýri. Leikfimissalur opnast, skref húsvarðar bergmála á körfuboltaspjöldum.
Make You Feel My Love – Knúið af kúlusúkk
Bob Dylan – Make You Feel My Love Það er erfitt að skilja Dylan. Djúpur? Já. Nóbelsverðlaunahafi? Já. En samt er hann líka bílastæða-maður. Gaur sem er mest í elementinu sínu í ljótri skyrtu innan um ómerkilega bíla. Samt er hann ekki basic. Það er alltaf eitthvað tvist, einhver súputeningur í vasanum. Fílalag heldur áfram […]
Diamonds and Rust – Tíkallasími, tunglið og tíminn
Joan Baez – Diamonds and Rust Hún er Venus í skelinni, móðir og meyja, Kelti og frumbyggi, sigld, sveipuð silki. Joan Baez. Ósnertanleg keramik stytta. En þó líka mjúk sem deig. Í sínu frægasta lagi gefur hún ekkert eftir í ísköldum víbrató flutningi, en ásetningurinn er heitari en kvika Merkúríusar. Hún sendir sneið á fyrrverandi […]
Knockin’ On Heaven’s Door – Þurr steinn grætur
Bob Dylan – Knockin’ On Heaven’s Door Fyrsti í Dylan-svítu. Fógetinn er við dauðans dyr. Hann grefur byssur sínar. Útlagi í Ástralíu-frakka gengur framhjá Monaco á Laugavegi. Þunnur maður brotnar saman í Volkswagen Jetta bifreið. Það er brostið á með Dylan-regni og það mun lemja ykkur fast. Þið verðið löðrunguð eins og í baráttunni við […]
White Christmas – “Let’s Go Have a Coca-Cola”
Bing Crosby – White Christmas Það gengur svo mikið á í lífi okkar að við þurfum stundum pásu, frið, hlé. Við þurfum þetta hlé einu sinni á ári. Jólin eru fyrst og fremst hlé frá veseninu, rifrildinu, stríðinu og stritinu. Þess vegna elskum við hvít jól. Því snjórinn leggur hvíta mottu yfir allt, kallar fram […]
1979 – Goth báðu megin
The Smashing Pumpkins – 1979 Lífið er endalaust. Fyndinn 16 ára gaur djögglar snakkpokum inn í flúorljósum 10-11, tvær stelpur hlæja en meira að honum en með honum. Lífið er endalaust, orkan er endalaus, hláturinn hættir aldrei. En dauðinn er nærri, dauðinn er inn í okkur og með okkur og það er daðrið við dauðann […]
Only Time – Silkiþræðir Keltans
Enya – Only Time Hver þekkir vegi himinsins? Fuglinn. Hver veit hvert vindurinn mun blása? Fuglinn. Hver býr yfir grimmd grameðlu og sakleysi páskaungans? Aðeins fuglinn. Hver hratt af stað iðnbyltingunni? Keltinn. Hvert er leynihráefnið í rokk og ról? Keltinn. Hver skynjar tímann sem leiftur? Aðeins keltinn. Peningar. Hollywood. Kastalar. Brún augu í þokunni, hrjóstrug […]
Snertu, elskaðu og fljúgðu – You’ve Lost That Lovin’ Feelin’
The Righteous Brothers – You’ve Lost That Lovin’ Feelin’ Kærleikurinn. Geðveikin. Gnægðin. Háloftin. Hlið himins. F-18. 33C. Undir þér er motta. Lokaðu augunum, opnaðu hjartað, láttu þig falla.
Undir regnboganum – Nanooq í Kringlunni
Hvalræði – Undir regnboganum Jökulblátt vatn. Orbit-tyggjó. Fljótandi ísjakar. Morgunsjónvarps stjarna hlær. Skutull skríður. Blóð fossast. Veðurbarinn maður með barta í Víetnam hermannajakka gefur vélinni meiri olíu. Það er hugmyndastríð á Norðurslóð, takmarkalaus þykistuleikur í búningi káboj og indjána.  Allsherjargoði og eilíft sumar, ostaslaufur, kókdós og jójó-æði. Norðrið, n
Rasputin – Alheimsgreddan
Boney M – Rasputin Á meginlandi Evrópu býr leigubílstjóri sig undir langa vakt. Hann girðir terelín buxurnar upp að handahrikum og herðir beltið vel áður en hann klæðir sig í hnausþykkann perrajakkann. Grænn Derrick-skífusími hringir. Hann svarar og heyrir að hinum megin á línunni er rykfrakkaklæddur einkaspæjari með fjárkúgunartilburði. Annars staðar á hnettinum er Hemmi […]
Walk Away Renée – Tær buna
The Left Banke – Walk Away Renée Glimrandi unglingar, tærir en tjúllaðir, nýbúnir að ljúka upp gáttinni að undrum klassískrar tónlistar, búnir spjótum og panflautum, nestaðir af náttúrunnar hendi, í víðum skyrtum og þröngum jökkum. Glimdrandi unglingar, tyggjójórtrandi, skröltandi beinahrúgur með þróttmikil hjörtu. Ó elsku sixties síkadelíu frumkvöðlar, opinmynntir, stóreygir en svo óbrynvar
Venus – Appelsínugulur órangútan losti
Shocking Blue – Venus Hollenskur nefapi sveiflar sér á grein. Starfsmaður Philips bókar sig á tveggja stjörnu hótel við hlið Paddington stöðvarinnar í London. Kona setur á sig klút. Í efnafræðistofu í austurhluta Reykjavíkur brennur magnesíum. Jack London horfir á.
No Woman, No Cry – Skráargat gullna hliðsins
Bob Marley – No Woman, No Cry Samruni tónlistar og trúar, akursins og borgarinnar, gamla tímans og nýja. Skurðpunkturinn, meitluð sneiðmyndin, hin ljóslifandi rispa á landslagi hugans, auga ljónsins grafið djúpt í gamla Adidas merkið. Í mesta myrkinu, moðreyknum er að finna göngin að ljósinu. Þangað verður gullvagninn sendur og upp í hann stígur riddari […]
All I Wanna Do – Tilhlýðilegt hangs
Sheryl Crow – All I Wanna Do Þetta er ekki mega djamm. Þetta er ekkert sunnudags sófaspjall heldur. Þetta er miðlungs sötr. Menn að fá sér. Skaðræði í litlum skömmtum. Tilhlýðilegt hangs. Sheryl Crow flaug inn um glugga Ameríku sem bakraddafagmaður. Hún kunni allar ritningar sunnudagsskólans og söngleikjadeildarinnar. Hún kunni og hún framkvæmdi. Og hún […]
Eitt lag enn – Sprittkerti á Stórhöfða
Brimkló – Eitt lag enn Það er myrkur. Það er kalt. En hérna inni er heitt. Funheitt og huggulegt. Það er stórhríð úti. Úlfurinn blæs og fnæsir á kofann en grísinn er teppalagður fyrir innan. Það er stormsveipur á ferð, sjó rignir og allt hangir á bláþræði. En hér inni er huggulegt. Allavega í smástund […]
Our House – Hlý baunastappa og maukgírun
Madness – Our House Takið rytjótt gólfteppi, nýsteikta ástarpunga, nokkur vel notuð garðáhöld, ilmvatn unglingsstúlku og gatslitinn Umbro fótbolta og skellið þessu í hakkavélina og myrjið þessu yfir ballskóna og pússið ofan í leðrið þar til þið sjáið glettið andlit ykkar birtast sem spegilmynd. Sparkið svo upp hurðinni og hoppið upp í aftursætið á Austin […]
Exit Music (For a Film) – Hjarta hjartans
Radiohead – Exit Music (For a Film) Himininn yfir París. Þrútið var loft og þungur sjór. Tæring þess tærasta. Annó erótíka. Þú ert steindautt lík við vegarkantinn. Blóði litað blóm. Júlía leggur hníf að hjarta sínu. Lokuð augu Rómeós. Farðu burt, burtu frá mér. Ég er eitur. Manga-teiknimynda aflitun. Rúmdýna fyrir ofan Salatbar Eika. Close-mækuð endurköstun […]
Superstition – Hátt enni, heitt efni
Stevie Wonder – Superstition Klístrugt tyggjó undir kirkjubekk í Tannhjólaborg U.S.A. Kælt kampavín á fjallatígrisfeldi. Brynvarðir leðurjakkar og Jésúskegg. Hugsuðurinn í hillunni. Fjallabaksleið úr landi Stefáns. Ævintýri enn gerast. Sól rís, músík heyrist, hiti stígur upp. Hið hversdagslega kraftaverk sem bindur herbergið saman. Undur og stórmerki. Undur, undur og yndi. Bjórinn Stella Art
Free Bird – Fenið og flugið
Lynyrd Skynyrd – Free Bird Það er morgun. Beikonlitaður mótorhjólamaður kjammsar á djúpsteiktri krókódílatá. Hitamælirinn sýnir 40, rakamælirinn er sprunginn. Úr útvarpinu heyrast skruðningar þar til það brestur á með Free Bird. Krómsleginn álsívalningur flýgur um loftin blá. Sólglampandi fiðrildi fleygir sér inn í opinn og bjartan faðm maís-akranna. Við erum kannski ekki snákar, limlausar [
Boombastic – Bóman rís
Shaggy – Boombastic Svalur andvari. Honda Civic keyrir eftir Grensásvegi. Lítil sólgleraugu, hátt orkustig. Shaggy heyrist í útvarpinu. Allir fíla. Sumir halda að þetta sé grín, en verða brátt undir öldunni. Sóli Hólm kom í heimsókn og fílaði lagið um sprengikraftinn, frá uppáhalds eyjunni okkar allra, Jamaica. Allir að vera róóóóó-legir, en það er urrandi […]
Lady (Hear Me Tonight) – Frelsi, jafnrétti, sólarlag
Modjo – Lady (Hear Me Tonight) Freknuklasi á andliti fyrirsætu. Endalaus hlátur, endalaus harmur. Fingur móta blautan leir. Ilmur blóma. Hringtorg, fjallaþorp. Himininn er heiðblár. íþróttagallar. Smáglæpir. Citroen. Lokuð augu, þróunin og þykknið. Þú ert ástfanginn í fyrsta sinn. Bláar nótur. Blá veröld, eilífrar æsku og eilífs önuglyndis
Álfareiðin – Hátindurinn
Álfareiðin – Björgvin Halldórsson, Gunni Þórðar, Sjonne og Hænir Sveif snúið. Stimplar hamrast niður í þéttum takti. Allir mælar rjúka upp, vísar þeirra titra við mörk hins hvíta og rauða. Þessi vél keyrir á fullri ákefð og hana fær ekkert stöðvað. Það er tjú-tjú-trylla að sporleggjast yfir holt og hæðir, gegnum skóga og dimma dali, […]
Jerusalema – Húlú og Zúlú
Master KG ásamt Nomcebo – Jerusalema Vírusinn herjar. Ekki bara þessi kórónajakkafataklæddi heldur líka annar og skæðari. Dansfár sækir að heimsbyggðinni. Við erum ekki að tala um Macarena eða Gangnamanna-stílinn heldur dans og söng sem sóttur er dýpra, úr sjálfri frumorkunni, frá Afríku. Það má segja margt leiðinlegt um covid og heimsfaraldur, zoom-fundi og fjarlægðartakmarkanir. […]
Windmills of Your Mind – Hola hugmyndanna
Dusty Springfield – Windmills of Your Mind Langa-langa-langamma spinnur garn á spólu, hring eftir hring, ull sem hefur krullast og ullast í víraðan spíral af kind sem hefur staðið og jórtrað öld eftir öld, með kjálka sem snúast hring eftir hring, endalaust, að eilífu inn í rafrásir heilans sem gnísta boðum sársauka og gleði um […]
Seven Nation Army – Sýrustig sálarinnar
White Stripes – Seven Nation Army Ýlfrandi hundar. Paranoja. Sándtékk. Teppalagning. Apaheili. Converse All Star sólar klístrast við malbik bílastæðis. International House of Pancakes. Altarisdrengir lemja hvern annan með skiptilykli í skottinu á belgvíðum Plymouth með risastórri afturrúðu. Fílabein kramið í morteli, sáldrað í línur yfir gervigras í bakgarði einstæðrar móður sem hlaut e
Way Down We Go – Djöfullinn á hringtorginu
Kaleo – Way Down We Go Kjúklingabringurnar eru lentar á eldhúsbekknum, kaldar og blautar í frauðplastbökkum. Þær smokra sér úr plastinu eins og geimverur í Ridley Scott mynd. Þær smokra sér úr plastinu og klæða sig í ullarsjöl og setja á sig hatta. Kjúklingabringurnar steikja sér egg á pönnu. Þær horfa á eggið spælast á […]
Crazy – Klikkun
Crazy – Patsy Cline Kötturinn svífur um eldhúsið. Hárþurrkan syngur sópran inn á baði. Rafmagnslínurnar svigna milli stauranna úti á götu og spila hægan kontrabassagang. Það er klikkun í gangi. Kona lætur renna í krómbað og leggst í kaf sjálfsvorkunnar og efasemda. Þetta er bilun og brjálæði, fegurð og funhiti.
Sex on Fire – Logandi kynlíf ljónanna
Kings of Leon – Sex on Fire Hafið þið séð ljónshvolpa í dýragarði, leika við hvern annan, bíta í hálsa og veltast um í gamnislag, lúra svo þess á milli ofan á hver öðrum eins og tuskur. Ef það væri hægt að taka þessa orku, þetta ljónshvolpamódjó og setja á flöskur, þá væri maður með […]
Dag sem dimma nátt – Strenging húmsins
Í Svörtum fötum – Dag sem dimma nátt Oft hefur Ísland nötrað. Undan hrolli jöklanna, undan jarðhræringum, undan hafísnum, landsins forna fjanda. Oft hefur hrollurinn læst sér í taugakerfi þeirra sem hér búa, refa, minka og manna. Og hrollurinn framkallar herping, þúfur á handarbaki, húð kennda við gæsir og fygl. Það eru milljón ástæður til […]
Will You Love Me Tomorrow – Paradísarmissir, missir, missir, missir (bergmál)
The Shirelles / Carole King – Will You Love Me Tomorrow Hvað er þetta annað en paradísarmissir? Allt saman! Allar sögur! Nakið fólk að borða ávexti í vellystingum og búmm skömmustulegt fólk með fýkjublöð um klofið, grátbiðjandi um miskunn. Tveggja ára barn á bleyju, öskrandi og krotandi á veggi. Búmm. Sex ára barn í skóla, […]
Quit Playing Games (With my Heart) – Tárin, árin, sárin
Backstreet Boys – Quit Playing Games (With my Heart) Höfrungasýning í skemmtigarði. Aflitaðir endar. Rigning inni í vöruhúsi. Uppásnúnir gallajakkar. Pýramídasvindlara-umboðsmaður. Vinir að eilífu. Plakötin yfir rúmstokknum. Tárin, árin, sárin. Skipt í miðju, uppfært andlit, skemmtiferðasigling um veröld sem var, horfnar ástir, skot í myrkri, ölvunarakstur, MTV í Þýskalandi. Það var hlegið a
Gvendur á Eyrinni – Harmurinn, tyggjóið, eyrin og eilífðin
Dátar – Gvendur á Eyrinni Esjan er klædd flaueli. Handan hennar springur bomban. Sveppaskýið rís til himins. Faxaflóinn verður appelsínugulur. Við ströndina standa eyjaskeggjar með hnausþykk bítnikka-sólgleraugu og horfa á hamfarirnar en heyra ekkert hljóð. Svo fara allir heim til sín og sjóða ýsu og hlusta á aflafréttir í útvarpinu. Ekkert gerðist. Það er allt […]
Perfect Day – Fullkominn dagur (Live frá Kex Hostel)
Lou Reed – Perfect Day Í tilefni tíu ára afmælis Fílalag var ákveðið að hóa saman fólki og henda í snar basic live-fílun á Kex Hostel. Það þýddi ekkert annað en að fullkomna daginn með því að fíla Perfect Day. Er hægt að hugsa sér fílanlegra lag? Rammpirraður Lou Reed í lautarferð. Þetta gerist ekki […]
Heaven on their Minds – Stóru samskeytin
Carl Anderson og Jesus Christ Superstar leikhópurinn – Heaven on their Minds Sólbruni. Tímasprengja. Páskar. Heilaga landið. Gallabuxur. Aktivismi. Oflæti. Broadway. Hamas. Bringuhár. Langferðabílar. Vinátta. Stereo. Neysla. Biskupsstofa. Flugskeyti. Fótanudd. Mattheusarguðspjall. Leðurjakki. Vandarhögg. Þórscafé. Handsprengja. Klútar. Kynlíf. Carlsberg. Konseptplötur. Eyðimörk. Sviti. PLO.
Can’t Get You Out Of My Head – Búmmerangið í sefinu
Kylie Minogue – Can’t Get You Out Of My Head Orðið “popp” til að lýsa ákveðinni tegund tónlistar er einstaklega mikil svikamylla því það er viðeigandi fyrir það sem það lýsir á þrjá mismunandi vegu. Í fyrsta lagi þá lýsir orðið ákveðnu hljóði sem einkennir einmitt góða popptónlist. Góð popptónlist smellur í hlustunum, hún lætur […]
House of The Rising Sun – Húsið vinnur
The Animals – House of the Rising Sun Eins og við vitum öll þá hófst Bítlaæðið í Bandaríkjunum þegar ungmennni þess lands fengu að líta óklippt goðin augum í beinni sjónvarpsútsendingu frá CBS myndveri Ed Sullivans. Það var 9. febrúar 1964 og veröldin varð ekki söm aftur. Bítlarnir komu vel fyrir, dilluðu sér upp og […]
(Everything I Do) I Do It for You – Ör beint í hjartað
Bryan Adams – (Everything I Do) I Do It for You Þér er boðið í ferðalag. Hoppaðu upp á hestvagninn. Litli-Jón slær keyri í gamla bikkju og þú þýtur af stað í gegnum Skírið með fríðu föruneyti. Þetta er þeysireið, framhjá miðaldamörkuðum þar sem menn skjóta örvum og konur í þreföldum pilsum dansa. Við rjúkum […]
Going Home: Theme from Local Hero – Allt er fyrirgefið
Mark Knopfler – Going Home (Theme from Local Hero) Andinn. Stemningin. Newcastle upon Tyne. Þú þarft ekki að vera bestur, þú þarft ekki að vinna titla, þú þarft bara að vera góður við mömmu þína og gera við vaska. Þú ert hetja heimaslóðanna og við fyrirgefum þér mistök þín. Fílalag vaknar til lífsins á afmælisári […]
Teenage Dirtbag – Í aldingarði incelsins
Wheatus – Teenage Dirtbag Girtu kakíbuxurnar upp að handakrikum þannig að pínulítið hjartað skýlist undir beltissylgju úr látúni. Fáðu þér oreo og mjólk eftir skóla. Það er keila í kvöld. Farðu út í K-Mart til að kaupa kanil því ef veröld þín lyktar ekki af kanil þá er hún ekki lengur númer eitt. Hálfsjálfvirkir bílar, hálfsjálfvirkar […]
My Heart Will Go On – Stirðnandi klökka hjartalausa djúp
My Heart Will Go On (Love Theme from Titanic) – Celine Dion Blómabúðalykt. Orð sem voru hvísluð svo lágt að þau aldrei heyrðust. Unglingaherbergið sem stendur óhreyft. Þú heyrir panflautuleik á torgi í útlöndum. Ódýran, ómerkilegan panflautuleik spilaðan af kasettu. En þú færð kökk í hálsinn. Því þú ert lille og heimurinn er stór. Að […]
Got My Mind Set On You – Fjórfaldur skeinipappír í kók
George Harrison – Got My Mind Set on You Hawai-skyrtuklædd Samsonite taska með bavíana-rass situr á Kastrup og drekkur 40 millítra af colgate tannkremi. Last call for boarding. Útitekinn maður opnar Fosters dós í verkfæraskúr. Hann leggur garðklippurnar á hilluna, gengur út og sest upp á leggjalangan flamingóa og tekst á loft. Á húsþaki í […]
Sing – Hjakk og spaghettí
Fjórir fölir náungar í pólóbolum. Ljótur brúnn öskubakki á borði, búinn til í leirmótun á Waldorf-skóla. Hafrakex með sultu í kvöldmat í gær. Draumkennt blik í augum, sviti á efri vörum. Sami straumur og sló raflosta sínum yfir augu Syd Barrets lýstur inn í herbergi rafsurgs og tómra tebolla. Úr pottinum óma galdrar Tin-eyjunnar, óður […]
Skriðþunginn í skálinni – Bítlarnir – Dizzy Miss Lizzy, lifandi í Hollywood Bowl 1965
Bítlarnir eru að mörgu leyti þægilegt viðfangsefni. Þeir voru fjórir og þeir voru þvengmjóir. Þrátt fyrir alla sköpunargáfuna og dýptina þá eru Bítlarnir konsept sem er nokkuð þægilegt að setja í einn harðan pakka. Framkvæmdatímabil Bítlana afmarkast af sléttum tölum. Þeir störfuðu á árunum 1960-1970. Þetta var orkupakki sex, og hann situr naglfastur undir jólatré […]
Strönd og stuð! – Good Vibrations
Rafbylgjur smjúga í gegnum þunna gifsveggi. Brunabíll keyrir í útkall. Í höfuðkúpu er haldin veisla. Húlahringir orbita áreynslulaust. Pabbi skammar. Stanislav nágranni er sendur í raflostameðferð. Sólin hamrar geislum sínum á stillt hafið. Segulband flækist. Ljósálfur liggur á blakbolta. Stendur svo upp og stígur dans, á ströndinni, í takt við rafbylgjur. Þessi fílun fór fram live […]
Goodbye Yellow Brick Road – Hinn sinnepsguli vegur (Live í Borgó)
Elton John – Goodbye Yellow Brick Road Árið er 1973. Kynóðir Jesúsar safna krökkum upp í Volkswagen rúgbrauð og keyra til fjalla. Djúpgul skotveiðisólgleraugu seljast eins og heitar lummur. Bólufreðnir síðhippar gæða sér á Tex Mex meðan hár vex. Veröldin varð vitstola 1969 en þarna fjórum árum síðar hefur skollið á með heiðgulu rofi. Og […]
Wannabe – Kryds-ild
Fyrsta plata Spice Girls hét Spice og hún var nákvæmlega það: krydd. Og ekkert venjulegt krydd heldur napalm-karrí-lyftiduft. Kryddpíurnar sprengdu upp veröldina, og eins og allar alvöru sprengjur, þá gerðust hlutirnir hratt og átökin voru mikil. En það sem stóð eftir voru þó falleg skilaboð um mátt tónlistar, gildi vináttu og mátt stúlkna og kvenna […]
Have You Ever Seen The Rain? – Full ákefð
Creedence Clearwater Revival – Have You Ever Seen The Rain? Saga Creedence Clearwater Revival er best tekin saman með einu orði: ákefð. Hljómsveitin starfaði aðeins í örfá ár en gaf út sjö stórar plötur, ferðaðist um heiminn, tók Ed Sullivan mulninginn og Woodstock mulninginn og allt þar á milli. Og svo nánast eins skyndilega og […]
Gentle On My Mind – Lagið sem allir fíluðu
John Hartford og ýmsir – Gentle on My Mind Setjið á ykkur svunturnar. Á hlaðborðinu eru Glen Campbell, Aretha Franklin, Frank Sinatra, Elvis Presley og Dean Martin. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa flutt og maukfílað lagið Gentle on My Mind eftir ameríska blue-grass tónlistarmanninn John Hartford, og það gerið þið einnig. Gentle on […]
Over & Over – Sans Serif
Hot Chip – Over and Over Það er komið að tilgangslausu trúttilúllus skaðræði í formi duracell airwaves hjakks. Nú skal djammað fast og post mortem framkvæmt á post modern. Öld grafíska hönnuðarins. Eftirpartí á ellefunni. Þriggja pipara Ban Thai réttum sturtað yfir nóvember-kvíðann. Þröngar buxur, 8 GB RAM, heimildamynd um erfðabreytt matvæli. Staffadjamm. Ofnskúffan hennar […]
Let’s Spend the Night Together – Brokkið ykkur
Rolling Stones – Let’s Spend the Night Together Farið inn í föðurhúsin, undir loðfeldinn, inn í merginn, inn í kjarnsýruna og marinerið ykkur þar til Stephen Hawking segir Bó að segja gó á Big Bang. Náðuð þið þessu. Ekki. Tökum þetta aftur. Farið inn í föðurhúsin, undir loðfeldinn, inn í merginn, inn í kjarnsýruna og […]
It Ain’t Over ‘Til It’s Over – Make-Up-Sex Möxun
Lenny Kravitz – It Ain’t Over ‘Til It’s Over Snjáð gallabuxnaefni. Nefhringur. Skartgripir. Búdda-líkneski. Lág fituprósenta. Fender Rhodes. Haltu-mér-slepptu-mér-orka. Steinaldarmataræði. Innlit útlit í Amazon. Ríðum saman út í sólarlagið með John Wayne einu sinni enn. Einu sinni enn. Einu sinni enn. Kaffibarþjóna-augnaráðið. Vifta í húsgagnalausu herbergi. Engissprettur á
The Logical Song – Saðsamasti morgunverður allra tíma
The Logical Song bresku hljómsveitarinnar Supertramp frá 1979 er svo rökrétt að það nær ekki nokkurri átt. Samið af þunnum Bretum í hljómsveitabolum, tekið upp í fyrsta flokks hljóðveri í Bandaríkjunum, loftþéttur popppakki fyrir alla framtíð. Létt heimspekilegur texti með tímalausum hugleiðingum, Abbey Road hljómandi gítarar, wurlitzer hljómborðslínur og möfflaðar sjöu-trommur. The Logical Song e
Foolish Games – Djásnið í djúpinu
Jewel – Foolish Games Það er mikið af rusli í heiminum. KFC-umbúðir á sófaborði, ljótar byggingar í illa skipulögðum borgum sem öllum er sama um, kusk á hillu, milljónir laga sem er tímasóun að hlusta á. Í raun er heimurinn bara einn stór ruslahaugur. Saga okkar líka. Flestar minningar, flest orð sem hafa verið sögð, […]
Fílalag – Wild Thing (2.0) – Þáttur frá 2014
Fílalag er í hýði eins og flestir aðrir landsmenn. Því gripum við til þess að gramsa í gullkistunni og draga fram í dagsljósið eina af fyrstu fílunum sem kuklaðar voru enda ekki að undrast því lagið er algjör frumeðlustomper: Wild Thing. Takk fyrir. Við látum ekki eina útgáfu duga heldur kjömsum á þrem útgáfum; orginallinn, […]
Nessun Dorma – Hetja sigrar
Milljónir manna, milljónir sagna, tjöld máluð í litbrigðum jarðarinnar, sól á himni, hveiti á akri. Og stígvélið sparkar í knöttinn á miðjarðarhafi sagna, valda, átaka og ástríðna. Ítalía. Legíónur Sesars, drottnarar veraldar á tímum biblíusagna, meitlaðir hermenn og mömmustrákar olíu og hveitis. Verdi, Puccini, pússuð stígvél og strimlaskegg. Sigur, deiling, drottnun. La Scala á öðrum […]
Love – Eggjarauðan sem aldrei eyðist
John Lennon – Love Það er ekki bara Brimborg sem er öruggur staður til að vera á heldur líka innsta hólf í innstu kistu hvelfingar grafhýsis Tútankamúns. Það er hægt að verja og það er hægt að brynverja. Og ekkert er jafn öruggt, jafn varið, jafn hugmyndafræðilega afmarkað og lagið “Love” með John Lennon. Love […]
Heartbreaker – Harmurinn og hæðirnar
Bee Gees – Heartbreaker Saga Bee Gees er Sagan með stóru S-i og greini. Saga þjóðflutninga, saga efnahagsþrenginga, hæstu hæða, dýpstu dala. Elsta saga í heimi. Fyrsta Mósebók, fjórði kafli: Kain og Abel. Á ég að gæta bróðir míns? Vesalingar og krypplingar Victors Hugo, verksmiðjubörn Dickens. Undirskálaaugu Andersens. Saga Bee Gees inniheldur þjóðflutninga, lestarslys, hótelsvítur, […
Killing Me Softly With His Song- Að smyrja kæfu ofan á skýin
Roberta Flack – Killing Me Softly Lyklapartí í Norræna húsinu 1973. Samískar hempur lagðar á gólfin. Reykelsi fíruð. Kæfan smurð. Maður að koma heim af næturvakt hjá HS Orku lamast og leggur bílnum í myrkrinu, roðnar í myrkrinu. Peningar, kærleikur, myrkur. Hið myljandi hjól draumanna. Mylla draumanna.
Tubthumping – Almyrkvi af gleði
Chumbawamba – Tubthumping Gestófíll – Ari Eldjárn Í raun deyr man mörg þúsund sinnum áður en vomurinn með ljáinn mætir loksins. Það verður mótlæti, það verður sköddun, það verða vonbrigði, það verður lágdeyða og stundum er fótunum hreinlega sópað undan vel meinandi fólki. En ef einhver heldur að tilgangur lífsins sé að forðast mótlæti, átök […]











