
Fantasíusvítan
Lilja Gísla og Jón María fylgja þér í gegnum nýjustu Bachelor seríuna með vikulegri samantekt ásamt því að fara yfir það helsta sem gengur á í Bachelor heiminum.
Episodes
LI vika 1: Velkomin, vandræði og vendingar
Það er aldeilis að þessi fyrsta vika byrjar með vendingum og óvæntum atriðum! Svítu vinkonurnar eru spenntar fyrir komandi seríu og þessi vika kveikti sannarlega neistann og það verður ekki aftur snúið.
Vika 0: Velkomin aftur í villuna!
Vinkonurnar fara yfir þátttakendur í nýrri Love Island seríu í þessum nýja þætti! Framundan eru margar vikur af fólki á sundfötunum að þræta, tafsa og tauta í hvoru öðru um hver er skotin í hverjum og hver er ,,not there for the right reasons" og við erum here for it!
Vika 0.5: Met, Makeup og misgáfulegar umræður
Svítu systurnar mæta hressar og kátar í sófann í dag með lítinn gest við hlið sér - Eddi mætti hress og kátur. Umræðuefnið er margvíslegt en að þessu sinni var það TikTok, metgala, raunveruleikasjónvarpið og snyrtivörur eins og systrunum er lagið.
Vika 0.3: Seinar en sætar
Vegna tæknilegra örðugleika er þessi þáttur að koma í loftið LÖNGU eftir tökur. En hér er hann ferskur og flottur.
Vika 0.2: SuperNova, slúður og smávægilegt frekjukast
Þátturinn hefur fengið smá yfirhalningu. Í þættinum förum við yfir það helsta sem er að frétta í heimi raunveruleikasjónvarps, Jóna segir frá siðferðislega tæpum raunveruleika þáttum og systurnar taka frekjuköst, ekkert nýtt undir sólinni í rauninni!
Vika 0.1: Hvað, hver og hvernig?
Já það er Taylor Frankie no more í Bachelorette svo við vinkonurnar þurfum að leita annað til þess að finna fantasíusvítu umræðuefni. Í þessum þætti fórum við örsnöggt yfir það sem gerst hefur í Taylor málinu frá því að seríunni var cancelað og ræddum allt milli himins og jarðar.
Vika 0: Mættar, móðar og másandi!
Systurnar eru mættar aftur í Svítuna. Í þetta skipti til þess að ræða nýjustu seríuna af Bachelorette og allt sem henni fylgir the good, bad and ugly. Í þessum þætti förum við aðeins yfir það sem á daga okkar hefur drifið síðan við hittumst síðast fyrir næstum því 2 árum síðan!! Sama hvernig serían verður hlakkar okkur til að röfla, flissa og taka nokkur vel valin lög fyrir ykkur!
LI 24: vika 4 - kjánar, korter í netkt og Kristjana!
Já jú einmitt, seint og illa það breytist ekki! En Love Island vika 4 er mætt! Er Joey Essex mesta rassandlitið á eyjunni? Spurning sem er auðvelt að svara .. og er svarað óþarflega oft í þessum þætti. Lilja fær til sín snillingin Kristjönu í Love Island lestur og þær fara sannarlega ítarlega í saumana á þessari annars ágætu fjórðu viku!
LI 24: vika 3 - Drama, Dýrleif og delulu
Lilja er mætt með gest í sett en Dýrleif stór meistari, förðunarfræðingur, podcast stjarna og snillingur með meiru kemur í heimsókn að ræa viku 3 af Love Island!
Love Island 2024 vika 1&2!
JÚHÚ! Seint koma sumar en koma þó! Það tók okkar konur smá stund að ákveða að taka Love Island seríuna fyrir en hér er hún WHOOP! Óvenjulega sammála um flest í þetta skiptið og sorry Halldóra, we love you!
Fantasíusvítan ft. Birgitta Líf
Systurnar hafa tekið þá ákvörðun að taka viðtöl við fólk sem hefur tekið þátt í Íslenskum raunveruleika þáttum. Þær byrjuðu á raunveruleikastjörnunni, markaðsstýrunni og nýbökuðu móðurinni Birgittu Líf sem er hluti af LXS hópnum. LXS vinna nú að seríu 3 og það er gaman að fá að skyggnast á bakvið tjöldin. Birgitta er svo sjálf mikil áhugakona um raunveruleikasjónvarp svo þær stöllur fóru aðeins yf
Get to know us better
Þátturinn sem enginn bað um en allir vilja, það vita svita systur! Spurningar frá hlustendum og spurningar af internetinu. Bæði þær og þið fáið að vita ýmislegt mis nytsamlegt um systurnar kærustu og skærustu.
LIB S6 yfirferð: Drama, dólgur og dómharðar systur
Jú hæhó og dillidó! Mættastar og sætastar as per usual. Heiðurs þáttur um bestu Love is blind seríu sem gerð hefur verið og svitasystur skafa ekki af skoðunum sínum frekar en fyrri daginn. Það þarf enginn að segja okkur að fólk sé persónuleika prófað fyrir þessa þætti er það?
LI All stars - Loka þáttur
Ef svitasystur hafa einhverntíma verið kaótískar ... þá er það margfaldað með 12 í þessum þætti. Love Island, Fótbolti, hárgreiðslur og svo margt fleira og mun skrítnara sem var rætt í þessum þætti. En megin innihald, vissulega síðustu tveir þættir Love Island All Stars seríunnar, sem við hljótum að vera sammála um að var hreint út sagt frábær!
LI ALL STARS - Vika 5: Hjartsláttatruflanir, hóp-trúnó og hirðfíflin
Þá fer senn að líða að jólum... nei, lokum... þessarar seríu! (líðaaaa fer að lokum, hátið fer í hööönd). Ofboðslega mikið drama og skemmtilegheitum. Hjartsláttarkeppnina alltaf í uppáhalds hjá svita systrum. Þau eru send heim í hrönnum þessa þættina og það styttist í úrslitin!
LI ALL STARS - Vika 4: PDA's, pink partí og passive aggressive!
Herregud, það er aldeilis veislan af vitleysunni í þessari viku. Smá reiðar, smá glaðar, alltaf dómharðar. Er Chris fýlupúki eða heart broken? Var Georgie ógeðslega dramatísk eða fórnarlamb? Eru Arabella og Adam the real deal eða in it to win it? Látið okkur vita!
LI All stars - vika 3: Bombshells, bjánar og bullandi drama!
Jahérna, það er að hitna á óeyjunni! Allt að fara til fjandans en gaman er það! Ef þið hélduð að Lilja og Jóna hefðu ekki skoðanir á málunum þá er það misskilningur. Verði ykkur að góðu!
LI All stars - vika 2: tár, traust og tilfinningarússíbani
Það er einhvernvegin allt æðislegt þegar kemur að Love Island All stars, nema auðvitað Mitch.. boiii bye! Vinkonurnar hafa eins og oft áður miklar og sterkar skoðanir á öllu og engu sem gerist í þessari ágætu villu. Má samt Anton bara vera orðin uppáhaldið þeirra?
LI ALL STARS BABY! Vika 1
Já þið lásuð rétt, vinkonurnar hafa ákveðið að taka fyrir Love Island all stars þessa seríuna og mikið sem þær eru spenntar! Hér kemur góð yfirferð á viku 1. ATH að stelpurnar fylgja nokkurn vegin sjónvarpi símans en fara ekki fram úr þeim.
BIP 2023 LOKAÞÁTTUR
Lokaþátturinn kom loksins þrátt fyrir að flensan hefði reynt að skemma það !
BIP Vika 9: Brottfarir, brosnar vonir og blautir kossar
Þessi 40 mín BIP þáttur var innihaldsríkari en allir aðrir þættir seríunnar ... Svítu systur eru sammála því að það er ekki mikið af pörum sem lofa mög góðu en samt spennar að sjá framhaldið!
BIP vika 8: roast, rosti og rosa drama
Það ætlar allt um koll að keyra þegar Katie mætir á ströndina, hvað er hún að vilja hér upp á dekk?
BIP Vika 7: Hor, háfaði og hamingja
Kvefaðar svitasystur heilsast og sjáast í þessum ágæta þætti eftir 7undu viku Bachelor in Paradise!
BIP Vika 6: Tantra, tantrum og trekantar
Já vitiði, það eru allir með öllium á þessari strönd og það er í rauninni nákvæmlega þannig sem það á að vera. Brayden sýnir loks sitt rétta andlit og Kat er með öllu óþolandi eins og henni einni er lagið..
BIP vika 4 og 5: Frekjukast, flækjur og ferlega óvænt par
Er til of mikils ætlast að fá rósa afhendingu vikulega? Nei bara spyr. Annars eru Svítu systur ansi sjokkeraðar yfir því að vera komnar á Brayden vagnin, hver átti svo sem von á því?
BIP vika 3: Shitshow, skæl og svo höldum við með Braydon?
Það er fokið í flest þegar vinkonurnar eru til í að flykkja sér á bakvið Braydon og standa með honum í rifrildi! En einhverntíma er allt fyrst. Of mikið rætt um kúk í einum þætti en það er vonandi búið fljótlega.
BIP vika 2: Horgrátur, hamingja og Hannah Brown
Afhverju fær public ekki að kjósa einn burt? Vinkonurnar eru allavega ekki sammála Olivia um hvern þær myndu kjósa burt en það er annað mál. Það var ansi tíðinda lítil vika á ströndinni en alltaf gott og gaman að stoppa þar við.
BIP Vika 1: Velkomin í Paradís!
LOKSINS! Paradís er eins og jólin, kemur bara einu sinni á ári og Lilja og Jóna alltaf jafn spenntar! Afhverju er Blake heitasti maðurinn á ströndinni? Afhverju eru alla skotnar í jakka Will? Og afhverju er Rachel með arfaslakann smekk á mönnum?
Vika 9: Bónorð, brotið hjarta og Bachelor
Þá hefur Charity fundið ástina og í þessum þætti fara vinkonurnar yfir lokaþátt Charity og ATFR. Allt er gott sem endar vel er það ekki?
Home towns og Fantasíusvítur Charity !
Já það kom að því að þátturinn mætti á veiturnar! Home towns og svítur stappað saman í einn klukkutíma þátt, enda getum við öll verið sammála um að home towns eru eiginlega tímaeyðsla!
Love Island Finale ft. Hugi Halldórs
Já hann losnar ekki við okkur hann Hugi og mætti að þessu sinni færandi hendi með rósavín handa skvísunum svo bæði röflið, hlátursköstin og athyglisbresturinn eru á nýju áður óséðu stigi í þessum þætti! Fórum yfir Love Island seríuna, notkun á augnkremi, Adele, frægt fólk á instagram, crossfit og fótbolta svo eitthvað sé nefnt!
Vika 5: Hlaup, helgarferð og heimsmet í óákveðni
Já það er vika 5 og einhvernvegin er home towns strax í næstu viku? Hvað er að eiga sér stað? Allavega 4 deit og nóg að gerast!
Vika 4: Glæfra stökk, grátur og glæpamaður í Tjaldi
Vika fjögur og alltí einu nánast engir menn eftir!? Hvað er að eiga sér stað þarna í US and A? En allavega þá er allt í blússandi gangi hjá okkar konu Charity og vinkonurnar spenntar fyrir seríunni, það gerist nú ekki á hverjum degi.
Vika 3: Ken, kast & karladrama
Það er komið að þriðju viku í þessari seríu og hamingjan góða, serían lofar góðu! Barbie the Movie placement eins og þær gerast bestar og einn vel óþolandi gaslýsari sem mætti senda heim okkar vegna.
Vika 2: Bolti, bjánar og barnalegt drama
Það er þáttur af Bachelorett. Vika 2 og hingað eru komnir óþarflega miklir bjánar ef þið spyrjið okkur. Við vinkonurnar höfum óþarflega miklar skoðanir eins og oft áður. En við höfum fulla trú á að serían lifni við í næsta þætti.
Vika 1: Velkomin Charity
Þær eru mættar, ykkar allra uppáhalds Jóna og Lilja með fyrsta þátt af nýrri Bachelorette seríu! WHOOP!
Love Island Special ft. Fjóla og Þorbjörg vol 2
Úff púff það er svo mikið að gerast á ástareyjunni að við getum ekki haldið okkur frá stúdíóinu! Það þarf bara að ræða þetta. Í þessum þætti er farið yfir þætti til og með 25.
Love Island Special ft. Hugi Halldórsson vol.2
Lilja fékk Huga aftur í svítuna til þess að halda aðeins áfram að ræða Love Island. Farið yfir þætti 17-21, alltof langur þáttur fyrir svona lítið efni, en hvað getum við sagt þau gátu talað nóg. Hversu þreytandi er Medih? Er Sammie síðasta sort? Afhverju er Mitch svona despó? Þetta og svo ótrúlega margt fleira í þessum auka Love Island rant þætti.
Love Island Special ft. Fjóla og Þorbjörg
Lilja fékk til sín góða gesti vinkonur sínar Fjólu Heiðdal og Þorbjörgu. Stelpurnar fóru yfir Love Island þætti 2-16 ! Ekki alveg farið í minnstu smáatriði en helstu uppákomur og pörin rædd í þaula. Allir í góðu dómarasæti eins og vera ber!
Love Island ft. Hugi Halldórsson
Jú það er okkar uppáhaldstími þegar mis áhugavert fólk frá UK hittist á Mallorca og fer í sleik! Förum yfir fyrsta þátt ásamt því að kynnast castinu örlítið. Gestur þáttarinn mikill meistari og raunveruleikasjónvarps unnandi, Hugi Halldórsson.
Raunveruleikaþættir, röfl og raunveruleikinn
Engar seríur í gangi en stelpurnar láta það ekki stoppa sig og taka einn góðan röflþátt. Hvaða raunveruleikaþátt myndu þær vilja sjá framleiddann? Hvernig þætti tækju þær helst þátt í? Afhverju er Jóna brjáluð útí Siggu Beinteins?
Love Island Loka vikan!
Já jú seint koma sumar en koma þó.. Allt í havaríi hjá ykkar bestu konum en hér kemur hann, loka þáttur Love Island seríunnar!
Li vika 7: Snog, marry, PIE !
Þættir 40-46 let's goo!
LI vika 6: Myndir, meðalmennska og mesta dramað
Jahérna hér kæru vinir! Movinight svíkur engann nema þá kannski Love Island eyjaskeggja. Ef það kemur ykkur á óvar þá höfðu vinkonurnar sterka skoðanir á þessu öllu saman og láta þær vissulega í ljós hér í þættinum!
LI Casa Vika: Brostnar vonir, bræði og brotin hjörtu
CASA!!! Stelpurnar taka fyrir þætti frá síðasta þætti pre Casa og fram yfir endurpörun eftir Casa. Holy guaq!
LI vika 4: Riddarar, raunveruleiki og rosa rómantík
Vika fjögur örlítið seint á ferðinni enda þáttastjórnendur miklir heimshornaflakkarar og hafa engann tíma til að vera heima hjá sér. En hér kemur hann með sérstökum gest, Fjólu Heiðdal!
LI vika 3: Kossar, kúkalabbar og krútt
Það gengur á ýmsu á ástareyjunni, sem er alls ekki eyja, þessa þriðju viku! Lilja og Jóna hafa vissulega sterkar skoðanir á hlutunum, ekki við öðru að búast svo sem.
LI vika 2: Gredda, gleði og grátur
Þrjú G sem er kannski ekki æðislegt að blanda saman .. en fyrir Halldóru, PJALLA! Gleðilega Love Island viku 2! Þegar þetta kemur út eru allir þættir sem eru til umræðu komnir á sjónvarpsímans!
LI vika 1: Sjóðandi drama, staðreyndir og sleikar
Fyrsta vikan er á enda og við vart ráðum okkur fyrir kæti! Er eitthvað skemmtilegra en Love Island?
Gleðilegt Love Island 2023
Já þið lásuð rétt, það er komið að því að stöllurnar taki Love Island fyrir! Enda langt um besta sjónvarpsefni sem finnst á þessari jörð, svona sirka.
Svítujól!
Hvað gera stelpurnar um jólin? Hver eru uppáhalds jólalögin? Allt um jólin hjá svítusystrunum hér .
Vika 9: Trúlofanir, tár og tilfinningar!
ÞETTA VAR PARADÍS !
Vika 8: Brotnasta hjartað, ball og besta rifrildi allra tíma!
VERÐUM EKKI ELDRI ! Itch eða pain, heimskulegasta rifrildi mannkynssögunnar. Svo má ekki gleyma human churro... hjálpi okkur öllum.
Vika 7: Óvissa, ómerkilegheit og ótrúlega brotin hjörtu
Við skrifum til ykkar með sorg í hjarta eftir þennan dramatíska þátt af ströndinni okkar allra. Þetta er vonandi allt uppá við héðan!
Vika 6: Twins, taco og tannburstinn
Þarf einhver að fá frekjukast í hverjum einasta þætti? Ekki það að það er fínasta áhorfs efni svo sem, tökum það fram yfir human Taco any day! Það er allt á suðupunkti á okkar uppáhalds strönd og núna er orðin stutt í lokin á þessu paradísar sumri! Hverjir endast? Aðrir en Brendan og Serene þeas.
Vika 5: Heimferð, heift og heljarinnar hamingja
Það er allt á suðupunkti á ströndinni okkar allra bestu. Stelpurnar koma heim eftir ferð á hótelin og enn hata þær allar Jesse Palmer. Hvaða sambönd lifðu þetta wannabe Casa Amore shit show af og hver ekki? Verða einhverjir eftir á þessari strönd í lokaþættinum?
Vika 4: Sorg, sviti og svik
Já það er allt að fara á aðra hliðina þarna á Bachelor strönfinni Það er eins gott að fylgjast fast með svo maður viti hver er búinn að fara í sleik við hvern! Casa amore rip offið fer ekkert brjálæðislega vel í vinkonurnar og þær liggja ekkert á skoðunum sínum þessa vikuna frekar en hina!
Vika 3: Stjörnur, spangól og snar óþolandi honeymoon
AFHVERJU ERUM VIÐ AÐ HORFA Á GIFT PAR PRUMPA UNDIR SÆNG!? Jæja .. en áfram gakk ! Pör að myndast, en ennþá ekki nóg og mikið drama fyrir okkar smekk. Hlökkum samt til næstu viku!
Vika 2: Bromance, besti og brotin hjörtu
ROOOOODNEEYYY loksins mættur á le beach ! Við elskum fáa jafn mikið. Eitthvað um drama, mætti vera meira en jæja! Vika tvö á enda.
Vika 1: Þett'er PARAAADÍÍÍS
LOKSINS SERÍA SEM VIÐ NENNUM! Fleira var það ekki, góða skemmtun!
Vika 11: Lengstu Lokaþættir Lífs Okkar
Þá er þessi snooze fest á enda! Þessir tveir lokaþættir eru bara eins og restin af seríunni, frekar langdregnir og erfiðir fyrir skap vinkvennanna! En það er margt að ræða og langur þáttur! verði ykkur að góðu bara. Við sjáumst svo í Paradís í vikunni !! :D
Vika 10: FANTASÍUSVÍTUR
Fantasíusvítur og tilheyrandi drama! Þetta ætlar alls ekki að vera nein skemmtisigling fyrir elsku Gabby okkar, litla ljóta vesenið á þessum mönnum sem hún valdi! En áfram gakk og allir gra..glaðir!
Men Tell all
Fullkomlega óþolandi að þátturinn hafi verið fylltur af bíímyndaauglýsingu og sósumarineruðum fullorðnum karlmanni, en alltaf er dramað jafn dásamlegt!
Vika 8: HomeTowns babes!
Við gleymdum að setja þennan þátt í loftið! Sorry svo mikið. Vonum að þið njótið vel elsku bestu rósir.
Vika 6: Home towns handan við hornið!
HVERNIG má það vera að það er strax komið að home towns?? Viðurkennum hér með að við vorum EXTRA neikvæðar og vondar í þessum þætti, svo ef þið elskið þessa seríu meira en lífið viljið þið líklega ekki hlusta á þennan þátt hahah .. fyrir fram sorry bara !
Vika 5: Grátur, gleði og meiri grátur...
Já jújú þessi sería einkennist af miklu táraflóði og óöryggi okkar fremstu kvenna. En hvað um það, við erum mætt til Belgíu í bjór, súkkulaði, tár og fiska kinnhesta. Allt nákvæmlega eins og það á að vera! Allt í boði Hello Sunday!
Vika 3: Hollywood, hljóðbað og hópmynd
Já dramað heldur áfram í Bachelor heiminum! Gab og Rach eru í óðaönn að reyna að finna ástirnar í lífinu og það gengur ekki áfalla laust fyrir sig! Gestur þáttarins er Þorbjörg!
Vika 2: speedo, sjokk og skíthæll
Það er örlítið skrítið að hefja þessa seríu án Jónu minnar en sem betur fer er gott fólk sem fylgist með okkur og er til í að koma og taka þættina með okkur! Takk fyrir komuna kæra Berglind.
Vika 1: Velkomnar Gabby & Rachel !!
LOKSINS eftir að er virðist sautján ára bið er loksins komin af stað ný sería ! Og það er heiðursgestur sem við elskum að fá okkar eigin ÚLFAR ! Gabby og Rachel eru mættar að kynnast mönnunum 32, alveg tveir auka úr því að það eru nú tvær lettur.. kynnumst mönnunum í þessum þætti og liggjum ekki á skoðunum okkar frekar en fyrri daginn!
Love Island vol 2 ft. Fjóla og Þorbjörg
Já okkur er heitt í hamsi yfir Love Island þessa dagana og liggjum ekki á skoðunum okkar í þessum þætti. Afsökum óþarfa æsing, en þeir skilja sem skilja!
Spjall með Evu Ruzu & Hjálmari
Þátturinn sem gleymdist að setja í loftið fyrir sumarfrí er mættur! Ekki hafa áhyggjur sumarfríinu er lokið, en takk Eva og Hjammi fyrir spjallið !
Love Island ft. Fjóla Heiðdal
Seint koma sumir en koma þó! Þátturinn sem átti að koma í loftið áður en Love Island byrjaði, en jæja! Áfram gakk og takk fyrir komuna elsku Fjóla!
Pókémon & Raunveruleika spjall með Góa Sportrönd
Að segja að stelpurnar hlusti ekki á hlustendur væri galið, því hér er hann mættur - Gói sportrönd!
Eurovision special!
Já jújú auðvitað elska stelpurnar júró - auðvitað stemmingskonur! Förum yfir það besta og versta í gegnum árin!
Gabby og Rachel upphitun
Já það eru kannski ennþá rúmir tveir mánuðir í seríuna (HVERNIG EIGUM VIÐ BARA AÐ BÍÐA SVONA LENGI). Skoðum aðeins strákana í seríunni, án þess að vita neitt nema nafn, heimabæ og skoða eina mynd, verður ekki mikið yfirborðskenndara en þetta en við bara getum ekki beðið!
The Ultimatum special
HVAÐ ER ÞETTA? Eitthvað það rosalegasta handrit sem við höfum heyrt af allavega! Förum yfir uppsetningu þáttana, keppendur og hvað gerist í þessu annars ágæta skemmtiefni!
Love is Blind special!
Já seint kom hann viku þátturinn, afsakið það kæru rósir. En hér er farið yfir seríu tvö af Love is Blind!
The Lilja and Jóna show
Einn sjálfhverfur og góður þáttur þar sem þið fáið að kynnast okkur örlítið betur!
Season 26 Recap
Í þetta skipti er snar fullt stúdíó! Ofur parið Tinna (okkar eina sanna) og Stefán mættu til Lilju og Jónu og fóru yfir seríuna hans Clayton og þeirra sameiginlega Bachelor áhuga.
Clayton Finale & ATFR
Hvað getur man sagt eftir svona lokaþátt? Stelpurnar eru allavega báðar mættar, eftir að hafa báðar fengið Covid á síðustu 2 vikum, hressandi það! Lokaþáttur Clayton og síðustu sekúndurnar á Íslandi.











